Frítímaslys

Þeir sem lenda í slysi í frítíma eiga yfirleitt lakastan rétt og í sumum tilvikum jafnvel engan. Oft gilda þá einungis frítímaslysatryggingar sem eru í fjölskyldutryggingum tryggingafélaga. Þó geta slysatryggingar launþega gilt, ef hinn slasaði fellur undir kjarasamning sem gerir ráð fyrir bótum í frítíma. Ef viðkomandi er með almenna slysatryggingu, gildir hún um frítímaslys og einnig slys í vinnu.

Rétt er að taka fram að verði slys í frítíma, getur það verið bótaskylt úr ábyrgðartryggingu, ef einhver annar ber ábyrgð á orsök slyssins, beint eða óbeint.

Algengt er að fólk átti sig ekki á bótarétti sínum úr fjölskyldutryggingu vegna frítímaslysa og að börn eigi þar einnig rétt. Bætur úr þeirri tryggingu eru m.a. dagpeningar og bætur fyrir læknisfræðilega örorku.
Suðurlandsbraut 18 • 108 Reykjavík • Sími 533 2050 • Bréfsími 533 2060 • www.fulltingi.is • fulltingi@fulltingi.is