Skaðabætur - hvað fæst bætt?

Hvað fæst bætt?
Ef um umferðarslys er að ræða, slys á sjómönnum eða slys sem er bótaskylt úr ábyrgðartryggingu, á tjónþoli rétt á eftirfarandi greiðslum:
Sjúkrakostnaður og tímabundið tekjutap eru þær greiðslur sem unnið er í að fá greiddar fyrstu mánuðina eftir slysið.
Þegar örorkumat liggur fyrir varðandi varanlegar afleiðingar slyssins þá greiðir tryggingafélagið þjáningabætur, miskabætur og bætur vegna varanlegs taps á starfsge
Sjúkrakostnaður og annar kostnaður
Hér undir falla m.a. útgjöld vegna læknismeðferðar, dvalar á sjúkrahúsi, sjúkraþjálfunar og sjúkraflutninga. Einnig getur kostnaður vegna t.d. leigubifreiða og stoðtækja tilheyrt þessum flokki. Mikilvægt er að halda til haga frumritum af öllum reikningum og koma þeim til okkar, en við sjáum um að krefja tryggingarfélagið um útlagðan kostnað.
Bætur vegna tímabundins tekjutaps
Tjónþoli getur átt rétt á greiðslum fyrir þann tíma sem hann er frá vinnu og fær ekki bættan frá sínum vinnuveitanda. Bæturnar miðast þá við þann tíma sem launagreiðslur falla niður hjá vinnuveitanda og þar til tjónþoli hefur aftur störf, eða ef ekki er að vænta frekari bata. Huga þarf einnig að bótarétti hjá Sjúktratryggingum Íslands á þessum tíma.
Eftir greiðslur frá tryggingafélaginu getur tjónþoli átt rétt á greiðslum frá stéttarfélagi eða lífeyrissjóði.
Ef um frítímaslys eða einfalt vinnuslys er að ræða þá getur tjónþoli átt rétt á dagpeningum.
Þjáningabætur
Tjónþoli á rétt á þjáningabótum fyrir tímabilið frá því að tjón varð þar til ekki er að vænta frekari bata. Fjárhæðirnar taka mið af því hvort tjónþoli er rúmliggjandi eða ekki.
Miskabætur
Bætur fyrir miska fela í sér greiðslu á ófjárhagslegu tjóni fyrir tjónþola. Við matið er ekki tekið tillit til starfs, sérstakra hæfileika eða þjóðfélagsstöðu. Þetta þýðir að allir eru metnir til sömu örorku fyrir sams konar áverka. Miðað er við tilteknar örorkutöflur þar sem er að finna viðmið við mat á örorkunni. Þannig er t.d. missir litlafingurs um 5-7% örorka hvort sem um er að ræða píanóleikara, lögfræðing eða iðnaðarmann.
Bætur vegna varanlegs taps á starfsgetu
Tjónþoli getur orðið fyrir varanlegri skerðingu á getu til að afla vinnutekna til framtíðar eftir slys. Tekjuskerðingin getur t.d. komið fram í því að tjónþoli þarf að breyta um starfsvettvang og lækkar í kjölfarið í launum. Einnig getur þetta komið fram í skertri getu tjónþola til að taka að sér álagsvinnu eða mikla yfirvinnu. Að lokum getur slys haft það í för með sér að tjónþoli þarf fyrr að minnka við sig vinnu á lífsleiðinni.
Við mat á varanlegri örorku er horft til þess hvaða tjóni tiltekinn áverki veldur tilteknum einstaklingi. Við mat á þessu er m.a. horft til aldurs tjónþola, menntunar, starfsreynslu, búsetu og fleiri einstaklingsbundinna forsendna. Þetta er því þveröfugt við mat á miska eða læknisfræðilegri örorku.
Læknisfræðileg örorka
Sá sem lendir í frítímaslysi eða einföldu vinnuslysi getur átt rétt á bótum vegna læknisfræðilegrar örorku, þ.e. ef slysið hefur í för með sér varanlegar afleiðingar. Við ákvörðun læknisfræðilegrar örorku ber ekki að taka tillit til starfs, sérstakra hæfileika né þjóðfélagsstöðu. Þetta þýðir að allir eru metnir til sömu örorku fyrir sams konar áverka, sbr. miskabætur.
Suðurlandsbraut 18 • 108 Reykjavík • Sími 533 2050 • Bréfsími 533 2060 • www.fulltingi.is • fulltingi@fulltingi.is