
Bílslys
Þegar fólk slasast af völdum bifreiðar þarf ekki að sanna sök til þess að eiga rétt á bótum. Skyldutryggingarnar gilda jafnt fyrir ökumann, farþega eða aðra sem verða fyrir tjóni af völdum bifreiðar.
Það er útbreiddur misskilningur að fólk í órétti eigi ekki rétt á bótum verði það fyrir líkamstjóni í umferðarslysi. Það er alrangt. Stór hluti af iðgjaldi fyrir hverja bifreið fer til tryggingar sem nefnist slysatrygging ökumanns og eiganda. Sú trygging gerir ökumanninn jafnsettan farþegum.
Tryggingafélagið bætir m.a. útlagðan kostnað fyrst eftir slysið (lækniskostnað, sjúkraþjálfun og fleira), tekjutap, þjáningabætur, miskabætur, bætur fyrir varanlega örorku, stærstan hluta lögfræðikostnaðar og annað fjártjón.
Sökum þess hversu ríkan rétt þeir eiga sem lenda í umferðarslysi, er mikilvægt að leita réttar síns, þótt tjónið kunni í upphafi að virðast smávægilegt.