Fréttatilkynning
Nafn Fulltingis slysa-og skaðabótamála ehf. óbreytt!
Vert er að árétta að nafn okkar, Fulltingi slysa- og skaðabótamál ehf, er óbreytt og þjónusta okkar sömuleiðis. Hins vegar hefur Fulltingi lögfræðiþjónusta tekið upp nýtt nafn og heitir nú ADVEL lögfræðiþjónusta. Lögfræðistofan Fulltingi ehf. var stofnuð árið 2001. Fyrirtækið óx hratt og fyrir röskum tveimur árum var starfseminni skipt milli eigenda í tvö sjálfstæð fyrirtæki: Fulltingi slysa- og skaðabótamál og Fulltingi lögfræðiþjónustu. Nafnabreytingin nú undirstrikar fullan aðskilnað þessara tveggja stofa, þannig að eftir stendur einungis ein lögfræðistofa sem ber upprunalega nafnið, þ.e. Fulltingi slysa- og skaðabótamál ehf.
Líkamstjón í kjölfar slysa valda oft miklum breytingum á lífi fólks. Margir sem lenda í slysi upplifa sig minnimáttar þegar kemur að samskiptum við tryggingafélögin. Flestir vita ekki hvaða rétt þeir eiga eða hvernig þeir geta náð fram sínum rétti.
Við ráðleggjum öllum sem hafa lent í slysi að leita strax til læknis. Ef rétt er staðið að málum frá upphafi, auðveldar það okkur að gæta hagsmuna þinna. Því fyrr sem þú leitar til okkar, því betur getum við gætt réttar þíns.
Við erum eina lögmannsstofan á Íslandi þar sem starfsmenn stofunnar sérhæfa sig eingöngu í slysabótum og skaðabótum og hafa langa reynslu á þessu sviði. Við útskýrum rétt þinn á mannamáli og hjálpum þér að fá þær bætur sem þú átt rétt á.
Meðal þeirra mála sem við tökum að okkur eru umferðarslys, vélhjólaslys, slys á sjómönnum, vinnuslys og frítímaslys.
Hafðu samband við okkur til að kanna rétt þinn – það kostar ekkert!